Fotbolti.net
13.06.26 - 12:44
Brynjar Ingi Erluson

Brighton hafnar tilboði frá nýliðunum

Brighton hafnar tilboði frá nýliðunum
Canon

Mynd: Coventry City

Brighton hefur hafnað 20 milljóna punda tilboði nýliða Coventry City í enska markvörðinn Carl Rushworth. Sky Sports segir frá þessu í dag.
Rushworth, sem er 24 ára gamall, var á láni hjá Coventry á síðustu leiktíð þegar liðið vann ensku B-deildina. Mikill áhugi er á því hjá félaginu að halda honum áfram.

Hann var mikilvægur hlekkur í liði Coventry og hélt sautján sinnum hreinu. Þá var hann valinn besti leikmaður tímabilsins hjá enska félaginu og í liði ársins í deildinni.

Englendingurinn á eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton, sem er þó með ákvæði um að framlengja samninginn um annað ár.

Bart Verbruggen og Jason Steele eru á undan honum í goggunarröðinni hjá Brighton og gæti félagið því verið reiðubúið að leyfa honum að fara í sumarglugganum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.