Verður stærsti hluthafi West Ham

Daniel Kretinsky

Mynd: EPA

Daniel Kretinsky

Mynd: EPA
Tékkneski auðkýfingurinn Daniel Kretinsky verður stærsti hluthafi enska félagsins West Ham eftir að hafa náð samkomulagi um viðbótarkaup hlut í félaginu frá Gold-fjölskyldunni.
Kretinsky er sagður ætla að auka hlut sinn í 43 prósent og mun hann þar með fara fram úr David Sullivan, sem á 38,8 prósenta hlut. Sullivan sagði af sér sem stjórnarformaður félagsins á laugardag eftir að honum var tilkynnt að ásakanir um ósæmilega hegðun yrðu birtar.
Kretinsky og Vanessa Gold, sem erfði hlut föður síns, Davids Gold, eftir andlát hans fyrir þremur árum, greindu frá því í sameiginlegri yfirlýsingu að ákvörðunin um að kaupa viðbótarhlut myndi styrkja West Ham í baráttunni um að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina.
„Við höfum náð samkomulagi um helstu skilmála hlutabréfakaupa milli Gold-fjölskyldunnar og 1890 Holdings, sem tilheyrir EP-veldinu. Með fyrirvara um forkaupsrétt annarra hluthafa og nauðsynleg samþykki myndu kaupin gera 1890 Holdings að stærsta hluthafa West Ham með um það bil 43 prósenta hlut.
„Sem stærsti hluthafi félagsins mun EP-veldið geta veitt þá viðbótarfjármögnun sem félagið þarf.“
„Við búumst við að ganga frá kaupunum á næstu vikum. Þegar samkomulagið liggur fyrir hafa EP og Gold-fjölskyldan samþykkt að greiða atkvæði saman í lykilmálum og styðja þá stefnu að koma félaginu strax aftur í ensku úrvalsdeildina,“ segir í yfirlýsingunni.
Kretinsky er eigandi bresku póstþjónustunnar Royal Mail og á 94 prósenta hlut í tékkneska fjárfestinga- og orkufélaginu EPH.