Fotbolti.net
13.06.26 - 15:37
Brynjar Ingi Erluson

Bröndby hafnaði í öðru sæti - Fanney hélt hreinu í toppslag

Fanney Inga hélt hreinu í toppslag

Fanney Inga hélt hreinu í toppslag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Hafrún Rakel Halldórsdóttir og stöllur hennar í Bröndby höfnuðu í öðru sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.
Íslenska landsliðskonan kom inn af bekknum í lokaumferðinni með Bröndby sem vann öruggan 3-0 sigur á AGF.

Bröndby hafnaði í öðru sæti deildarinnar með 50 stig, þremur stigum frá Köge sem er meistari í ár.

Í B-deildinni hafnaði FCK í öðru sæti með 20 stig, jafnmörg og Midtjylland, sem tók efsta sætið á markatölu.

FCK vann einmitt Midtjylland, 1-0, í lokaumferðinni. Emelía Óskarsdóttir og Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir voru báðar í byrjunarliði FCK sem spilar í úrvalsdeild á næstu leiktíð.

María Catharina Ólafsdóttir Gros kom inn af bekknum hjá Djurgården sem tapaði fyrir AIK, 3-0, í sænsku úrvalsdeildinni. Djurgården er í 10. sæti með 8 stig.

Sigdís Eva Bárðardóttir kom inn á sem varamaður hjá Norrköping sem gerði 1-1 jafntefli við Rosengård. Norrköping er í 12. sæti með 7 stig.

Sænsku meistararnir í Häcken eru á toppnum eftir 1-0 sigur liðsins á Hammarby í Íslendingaslag. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir voru báðar í byrjunarliði Häcken á meðan Guðrún Arnardóttir var í liði Hammarby

Häcken er með 24 stig á toppnum, eins og Hammarby, sem er með færri mörk skoruð og því í öðru sæti.

Amanda Andradóttir var í liði Molde sem tapaði fyrir Stabæk, 2-1, í norsku úrvalsdeildinni á meðan Daníela Dögg Guðnadóttir kom inn af bekknum hjá Álasundi í 3-0 sigri á Lilleström. Álasund er nokkuð óvænt í öðru sæti með 22 stig eftir tíu leiki en Molde í 9. sæti með 10 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.