Fotbolti.net
13.06.26 - 16:22
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Elfar Árni hetjan í fyrsta sigri Völsungs - Sigurmark Leiknis kom í blálokin

Elfar Árni tryggði Völsungi fyrsta sigur tímabilsins

Elfar Árni tryggði Völsungi fyrsta sigur tímabilsins

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Völsungur vann sinn fyrsta deildarleik í Lengjudeildinni þegar liðið fékk Njarðvík í heimsókn á Húsavík.
Húsvíkingar gerðu jafntefli í fyrstu tveimur umferðunum í deildinni en höfðu síðan tapað sex leikjum í röð.

Það var ekki beint útlit fyrir að fyrsti sigurinn kæmi í dag miðað við byrjun leiksins. Njarðvíkingar fengu vítaspyrnu á 13. mínútu þegar Valdimar Jóhannsson slapp í gegn og Indriði Ketilsson braut á honum. Ekki annað hægt en að dæma víti og Bragi Karl Bjarkason skoraði úr vítaspyrnunni.

Gestirnir voru líklegir til að bæta við á næstu mínútum. Valdimar lék á varnarmann og átti fínt skot sem Jochum varði í markinu og þá fékk Bragi Karl tækifæri til að gera annað mark sitt en Jochum varði aftur fyrir endamörk.

Völsungur sýndi það undir lok fyrri hálfleiks að liðið ætlaði sér ekki að leggja árar í bát og gaf frammistaðan góð fyrirheit um það sem koma skyldi.

Arnar Pálmi Kristjánsson jafnaði metin á 58. mínútu. Elmar Örn Guðmundsson átti fyrirgjöf sem fór í gegnum alla vörnina og á Arnar, sem lagði boltann fyrir sig og negldi honum í hornið.

Njarðvíkingar voru nokkrum sinnum nálægt því að komast aftur yfir þegar leið á síðari hálfleikinn en vantaði herslumuninn áður en þeir fengu blauta tusku í andlitið.

Varamaðurinn Gestur Aron Sörensson átti sendingu á Elfar Árna Aðalsteinsson, sem stýrði boltanum í þaknetið á 88. mínútu leiksins. Það reyndist sigurmarkið.

Langþráður sigur hjá Völsungi sem er nú með fimm stig á botninum, tveimur stigum frá öruggu sæti, en Njarðvík er í 8. sæti með 11 stig.

Leiknismenn unnu svipað dramatískan 1-0 sigur á Vestra í Efra-Breiðholti.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en bæði lið voru fremur varnarsinnuð.

Þegar lítið var eftir af síðari hálfleiknum fékk Konstantin Cheshmedjiev, leikmaður Vestra, sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það reyndist dýrkeypt því aðeins fjórum mínútum síðar skoruðu Leiknismenn sigurmarkið.

Birnir Breki Burknason kom inn af bekknum og skoraði örugglega á nærstöng til að tryggja Leikni sigurinn.

Mikilvægur sigur hjá Leikni, sem er nú í 4. sæti með 15 stig, en Vestri er í 6. sæti með 13 stig.

Völsungur 2 - 1 Njarðvík
0-1 Bragi Karl Bjarkason ('14 , víti)
1-1 Arnar Pálmi Kristjánsson ('58 )
2-1 Elfar Árni Aðalsteinsson ('88 )
Lestu um leikinn

Leiknir R. 1 - 0 Vestri
1-0 Birnir Breki Burknason ('87 )
Rautt spjald: Konstantin Cheshmedjiev, Vestri ('83) Lestu um leikinn
Birnir Breki var hetja Leiknis með sigurmarki í blálokin

Birnir Breki var hetja Leiknis með sigurmarki í blálokin

Canon

Mynd: Leiknir R.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.9+1119
2Afturelding8+816
3Fylkir8+215
4Leiknir R.9+215
5HK9015
6Vestri9-113
7Grótta7-112
8Njarðvík9+311
9Grindavík7-27
10Ægir8-57
11ÍR8-67
12Völsungur9-115
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.