Guðni Eiríks: Það er varla að ég skoði töfluna

Guðni Eiríksson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðni Eiríksson, þjálfari FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Góður sigur, fimm góð mörk og þrjú stig í pokann. Jákvætt fyrir FH liðið“ sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 2-5 sigur á Víkingum í Fossvogi í dag.
„Það er alltaf þannig að það er svona ákveðin óvissa og spurningarmerki þegar maður kemur til baka eftir pásu, það getur brugðið til beggja vona og mjög jákvætt að sjá FH liðið á löngum köflum í leiknum, þú talar um 70 mínútur og ég get alveg verið sammála því, og það er svo gott að sjá liðið sitt koma svona úr pásu og vinna góðan sannfærandi sigur, fimm góð mörk og veitir á gott upp á framhaldið varðar“ segir hann í framhaldinu.
FH liðið er að skora mörk í öllum regnboganslitum og aðspurður hvort að liðið leggi uppúr því að vera góðar í öllum hlutum leiksins segir hann:
„Við leggjum mikið upp úr sóknarleik liðsins, við leggjum mikið upp úr því hvað við gerum þegar við erum með boltann og förum upp á vallarhelming andstæðingsins þar sem við viljum vera þannig að þetta er bara æfingasvæðið, við æfum eins og við viljum spila.“
Með sigrinum fer FH á topp Bestu deildarinnar, er þetta árið þar sem það skilar sér titill í Kaplakrika?
„Ég veit það ekki, ég veit það ekki. Ég er allavega ekki farinn að hugsa svo langt og ég hef oft sagt þetta og ég virkilega meina það, það er varla að ég skoði töfluna.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.






