Fotbolti.net
13.07.17 - 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bender-bræðurnir liðsfélagar hjá Leverkusen (Staðfest)

Bender bræðurnir

Bender bræðurnir

Canon

Mynd: Getty Images

Tvíburabræðurnir Lars- og Sven Bender verða liðsfélagar hjá þýska félaginu Bayer Leverkusen á næstu leiktíð.

Leverkusen gekk í dag frá kaupum á Sven frá Borussia Dortmund fyrir 15 milljónir evra.

Sven hefur spilað með Dortmund frá árinu 2009, en nú ætlar hann að breyta til og spila með bróður sínum.
„Fyrir nokkrum dögum þá ræddi ég við Aki Watzke (framkvæmdastjóra Dortmund) og Michael Zorc (íþróttastjóra Dortmund) um það að ég þyrfti nýja áskorun eftir átta ár hjá Dortmund,\" sagði Bender við heimasíðu Dortmund.

„Ég er mjög þakklátur Borussia Dortmund að þeir hafi virt ósk mína, þrátt fyrir að þeir hafi viljað halda mér.\"

💯% #Bender!

Uns bleibt nur eines zu sagen: Danke, Manni! pic.twitter.com/AeZo3mWivu

— Borussia Dortmund (@BVB) July 13, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.