Fotbolti.net
13.07.17 - 17:15
Bergur Tareq Tamimi

Enner Valencia til Tigres (Staðfest)

Enner Valencia til Tigres (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaður West Ham, Enner Valencia, er farinn til mexíkóska félagsins Tigres.

BBC greindi frá þessu í dag.
Þessi 27 ára gamli sóknarmaður, frá Ekvador, skrifaði undir samning við West Ham árið 2014 eftir gott heimsmeistaramót í Brasilíu og þurfti félagið að borga 12 milljónir punda fyrir hann.

Valencia kom við sögu í 66 leikjum hjá West Ham og skoraði í þeim 10 mörk.

Valencia var lánaður til Everton á seinustu leiktíð þar sem hann náði einungis að skora þrisvar sinnum í 30 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.