Fotbolti.net
13.07.17 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kínverskt lið borgar 30 milljónir fyrir Modeste (Staðfest)

Modeste eltir peninganna til Kína.

Modeste eltir peninganna til Kína.

Canon

Mynd: Getty Images

Sóknarmaðurinn Anthony Modeste er genginn til liðs við kínverska liðið Tianjin Quanjian, en þetta var staðfest í gærkvöldi.

Hinn 29 ára gamli Modeste kostar Tianjin rúmar 30 milljónir punda.

Modeste hefur undanfarin ár verið duglegur að skora mörk fyrir Köln í þýsku úrvalsdeildinni. Hann skoraði til að mynda 25 mörk í Bundesligunni á síðustu leiktíð og var á meðal markahæstu manna.
„Köln þakkar Tony fyrir framlag sitt og óskar honum alls hins besta í framtíðinni,\" segir í yfirlýsingu sem Köln gaf út.

Tianjin hefur undanfarið verið orðað við Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmann Dortmund, en ólíklegt er að það gerist núna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.