Fotbolti.net
13.07.17 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Markus Suttner til Brighton (Staðfest)

Markus Suttner til Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Brighton hafa fengið liðsstyrk fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni. Austurríski bakvörðurinn Markus Suttner er kominn frá þýska liðinu Ingolfstadt fyrir óuppgefna upphæð.

Suttner, sem er þrítugur, spilaði 44 leiki á tíma sínum hjá Ingolfstadt og skoraði í þeim þrjú mörk.

Hann spilaði áður með Austria Vín í heimalandinu og þar spilaði hann 250 leiki og vann deild og bikar.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Brighton fær til sín í sumar. Áður höfðu miðjumaðurinn Pascal Gross og markvörðurinn Matthew Ryan samið við félagið þetta sumarið.

„Markus er leikmaður sem við höfum fyglst með í langan tíma,\" sagði Chris Houghton, stjóri Brighton.

„Reynsla hans mun nýtast okkur vel.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.