Fotbolti.net
13.07.17 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Samuel Saiz til Leeds (Staðfest)

Samuel Saiz til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Samuel Saiz, en hann kemur frá spænska liðinu SD Huesca.

Saiz skrifaði undir fjögurra ára samning við Leeds.

Félögin staðfestu það á mánudag að þau hefðu náð samkomulagi og í dag samdi leikmaðurinn persónulega og gekkst undir læknisskoðun. Hann skrifaði í kjölfarið undir samning.
Saiz skoraði 12 mörk í 42 leikjum í næst efstu deild Spánar á síðasta tímabili, en hann fór til Huesca frá Atletico Madrid á síðasta ári.

Hann er nú kominn til Leeds, en hann er áttundi leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar.

Áður höfðu Vurnon Anita, Caleb Ekuban, Madger Gomes, Pontus Jansson, Matuesz Klich, Hadi Sacko og Felix Wiedwald samið við félagið, en Thomas Christiansen tók við þjálfun Leeds fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.