13.07.17 - 09:54
Magnús Már Einarsson
Sölvi Geir til Guangzhou R&F (Staðfest)

Mynd: Guangzhou R&F

Mynd: Guangzhou R&F
Sölvi Geir Ottesen hefur samið við kínverska félagið Guangzhou R&F en samningurinn gildir út tímabilið þar í landi.
Hinn 33 ára gamli Sölvi yfirgaf Buriam United í Tælandi á dögunum og var félagslaus.
Orðrómur var um að Sölvi myndi koma í Pepsi-deildina en hann var meðal annars orðaður við Íslandsmeistara FH.

„Ég var eiginlega tilbúinn til þess að koma heim en þá kom þetta tilboð upp í hendurnar á mér sem var það gott að ég ákvað að slá til. Ég er búinn að æfa með liðinu í vikunni og ræða vel við þjálfarann og mér líst mjög vel á allt sem félagið hefur upp á að bjóða,\" sagði Sölvi Geir við mbl.is í dag.
Sölvi þekkir til í kínverska boltanum því hann lék með Jiangsu Suning þar í landi árið 2015.
Guangzhou R&F er í sjötta sæti í kínversku úrvalsdeildinni þegar tímabilið er rúmlega hálfnað í Kína. Tímabilinu lýkur í byrjun nóvember.