Galatasary hefur staðsfest að félagið hafi komist að samkomulagi við Everton um að fá Henry Onyekuru á láni.
Félagið hefur staðfest að þeir hafi verið í viðræðum við Everton um að fá framherjann og að nú sé samningur í höfn.
Onyekuru gekk til liðs við Everton síðastliðið sumar en eyddi öllu tímabilinu á láni hjá Belgíska félaginu Anderlech á meðan hann reyndi að útvega sér atvinnuleyfi í Bretlandi.
Það er ljóst að hann mun ekki spila með Everton í vetur og við fáum því líklega ekki að sjá hann í bláu treyjunni fyrr en í fyrsta lagi haustið 2019.
Henry Onyekuru Galatasaray'da!
— Galatasaray SK (@GalatasaraySK) July 12, 2018
🔗 https://t.co/3TRbelHvTn pic.twitter.com/vHSfPywlSY
Athugasemdir