Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
banner
   mán 13. júlí 2020 16:00
Magnús Már Einarsson
Ake frá út tímabilið - Áfall fyrir Bournemouth
Bournemouth hefur orðið fyrir gríðarlegu áfalli fyrir fallbaráttuna framundan en útlit er að varnarmaðurinn Nathan Ake spili ekki meira á tímabilinu.

Ake meiddist í 4-1 sigri á Leicester um helgina og allt bendir til þess að hann missi af síðustu þremur leikjum tímabilsins.

„Þetta lítur ekki vel út. Það er svo lítill tími eftir af tímabilinu að það lítur út fyrir að það verði erfitt fyrir hann að spila," sagði Eddie Howe, stjóri Bournemouth.

Ake gæti því verið búinn að spila sinn síðasta leik með Bournemouth en hann hefur verið orðaður við önnur félög.

Bournemouth er þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir en liðið á eftir leiki gegn Manchester City, Southampton og Everton.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Brighton 29 9 10 10 38 36 +2 37
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner
banner