Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mán 13. júlí 2020 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Haaland hent út af næturklúbbi í Noregi
Erling Braut Haaland.
Erling Braut Haaland.
Mynd: Getty Images
Svo virðist sem Erling Braut Haaland, sóknarmanni Borussia Dortmund, hafi verið hent út af næturklúbbi í Noregi um helgina.

Það er alla vega myndband í dreifingu á samfélagsmiðlum sem bendir til þess.

Hinn 19 ára gamli Haaland er í fríi í heimalandi sínu eftir að tímabilið í Þýskalandi kláraðist.

Haaland gekk í raðir Dortmund frá Red Bull Salzburg í janúar og skoraði 13 mörk í 15 leikjum í þýsku úrvalsdeildinni. Það var hins vegar ekki nóg fyrir Dortmund til að hafa betur gegn Bayern München í baráttunni um titilinn.

Hér að neðan má sjá umrætt myndband en faðir Haaland, Alf-Inge, skrifaði á Twitter: „Komdu aftur í vinnuna. Næturlífið í stórborginni er ekki fyrir þig."




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner