13.08.16 - 17:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur bikarmeistari 2016 (Staðfest)
Sigurður Egill sá um ÍBV

Sigurður Egill skoraði bæði mörk Vals

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Sigurður Egill skoraði bæði mörk Vals

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Valur 2 - 0 ÍBV
1-0 Sigurður Egill Lárusson (\'8)
2-0 Sigurður Egill Lárusson (\'21)
Lestu nánar um leikinn
1-0 Sigurður Egill Lárusson (\'8)
2-0 Sigurður Egill Lárusson (\'21)
Lestu nánar um leikinn
Valur er bikarmeistari árið 2016 eftir sanngjarnan sigur á ÍBV á Laugardalsvelli. Þetta er annað árið í röð sem Valur tekur bikarmeistaratitilinn og hefur verið verðskuldað í bæði skiptin.
Eyjamenn voru töluvert meira með boltann til að byrja með, en það voru Valsmenn sem skoruðu fyrsta markið. Kristian Gaarde átti þá flotta sendingu á Sigurð Egil Lárusson sem tók frábærlega á móti boltanum, lék á Jonathan Barden og setti hann fram hjá Derby Carrillo í markinu.
ÍBV varð fyrir áfalli eftir þetta því fyrirliðinn Avni Pepa þurfti að fara meiddur af velli og það nýttu Valsmenn sér, nánar tiltekið Sigurður Egill. Andri Adolphsson átti flotta sendingu á Kristinn Inga sem setti hann fyrir markið og þar var Sigurður Egill mættur til þess að klára.
Það gekk ekki mikið hjá ÍBV í fyrri hálfleik og ekki mikið meira í seinni hálfleiknum. Valur tók því bara rólega ef svo má segja í seinni hálfleiknum og það gekk lítið hjá ÍBV að skapa færi.
Valur hélt út og þeir eru því bikarmeistarar annað árið í röð.
Til hamingju Valsmenn!