Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 13. ágúst 2020 23:30
Aksentije Milisic
Immobile getur ekki beðið eftir að Silva komi til Lazio
Mynd: Getty Images
Ciro Immobile, framherji Lazio, hefur sagt að hann geti ekki beðið eftir að spila með spænska miðjumanninum David Silva.

Búist er við því að Silva skrifi undir þriggja ára samning við Lazio í sumar en þessi 34 ára gamli leikmaður mun yfirgefa Manchester City eftir að Meistaradeildinni lýkur. Hann kom til City árið 2010.

Immobile, sem skoraði 39 mörk í 44 leikjum fyrir Lazio á þessu tímabili, er mjög spenntur að Silva sé að koma.

„Ég get ekki beðið eftir að hann komi. Við leikmenn erum allir stuðningsmenn Lazio," sagði ítalinn.

„Frábær leikmaður með mikla reynslu. Við munum taka á móti honum með opnum örmum."

Silva hefur spilað alls 435 leiki fyrir City, skorað 77 mörk og lagt upp 144. Magnaður leikmaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner