Jan Oblak, markvörður Atletico Madrid, ætlar að skoða framtíð sína eftir tímabilið.
Oblak hefur verið orðaður við Chelsea en enska félagið vill fá nýjan markvörð til að taka við stöðunni af Kepa Arrizabalaga.
Atletico Madrid hefur sagt að Oblak sé ekki til sölu en hann verður í eldlínunni gegn RB Leipzig í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

„Ég skoða stöðuna þegar tímabilinu lýkur," sagði Oblak í viðtali við AS.
„Vonandi eigum við ennþá þrjá leiki eftir. Eftir það getum við talað saman. Fyrst er það Leipzig. Ég hlakka mikið til."
Athugasemdir