RB Leipzig er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-1 sigur á Atletico Madrid í kvöld. Þetta er í fyrsta skiptið í sögunni sem Leipzig kemst í undanúrslitin.
Leipzig komst yfir í síðari hálfleiknum en Atletico jafnaði metin úr vítaspyrnu. Það var svo Tyler Adams sem skoraði sigurmarkið fyrir þýska liðið undir loks leiks.
Atletico reyndi allt sem það gat til þess að jafna leikinn undir lokin en Leipzig þraukaði út og mætir því PSG í undanúrslitum. PSG vann dramatískan sigur á Atalanta í gær.
Vísir.is hefur birt myndband úr leiknum með mörkum leiksins. Þau má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir