Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 13. ágúst 2020 13:11
Magnús Már Einarsson
Willian skrifar undir hjá Arsenal fyrir helgi
Mynd: Getty Images
Willian mun ganga formlega til liðs við Arsenal í dag eða á morgun samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Hinn 32 ára gamli Willian er laus allra mála eftir að samningur hans hjá Chelsea rann út á dögunum.

Willian vildi fá þriggja ára samning hjá Chelsea en ekki tveggja eins og tilboð félagsins hljóðaði upp á.

Arsenal var tilbúið að bjóða þriggja ára samning og Willian er nú að ganga til liðs við félagið.

Willain hefur leikið með Chelsea síðan árið 2013 en hann spilaði áður með Anzhi Makhachkala í Rússlandi og Shakhtar Donetsk í Úkraínu.
Athugasemdir
banner