Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 13. ágúst 2022 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Jesus svekktur að hafa ekki skorað meira
Gabriel Jesus er strax byrjaður að reynast gífurlega mikilvægur leikmaður fyrir Arsenal.
Gabriel Jesus er strax byrjaður að reynast gífurlega mikilvægur leikmaður fyrir Arsenal.
Mynd: Arsenal

Gabriel Jesus lék á alls oddi er Arsenal mætti Leicester í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar.


Jesus skoraði fyrstu tvö mörk leiksins í fyrri hálfleik og lagði svo önnur tvö upp í þeim síðari í 4-2 sigri. Hann kom því að öllum mörkum Arsenal í leiknum en var svekktur að leikslokum að hafa ekki skorað meira.

„Ég átti að skora meira. Vinnan mín snýst um að skora mörk og ég gat skorað meira í dag en það skiptir ekki öllu máli. Það sem skiptir mig mestu máli er sigur gegn erfiðum andstæðingum og jákvæð spilamennska liðsins," sagði Jesus.

„Ég er að njóta mín í botn sem nían hérna en ég var ekki óhamingjusamur hjá City. Ég vildi bara spila meiri fótbolta - félagið skildi það og leyfði mér að fara.

„Mér finnst gaman á æfingum hérna og við erum líka með Eddie (Nketiah) sem er gæðamikill sóknarmaður og tilbúinn í úrvalsdeildarfótbolta. Arsenal er með tvo góða sóknarmenn."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner