13.08.24 - 16:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram leggur fram tilboð í Helga Guðjóns

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net lagt fram tilboð í Helga Guðjónsson leikmann Víkings.
Víkingur hefur verið á eftir brasilíska kantmanninum Fred og er Fram að svara í sömu mynt með tilboði í Helga sem er fyrrum leikmaður Fram. Víkingur er að reyna styrkja liðið sitt fyrir komandi átök í deild, Evrópu og bikar og hafa þeir reynt við Fred og Viktor Jónsson í dag.

TENGT EFNI
Víkingur reyndi við Viktor Jóns og vill fá Fred
Helgi Guðjónsson er 25 ára framherji sem uppalinn er í Fram en hélt í Víkina eftir tímabilið 2019. Það tímabil skoraði hann 15 mörk í 22 leikjum í Lengjudeildinni.
Hann hefur skorað 28 mörk í 102 deildarleikjum með Víkingi og er í stóru hlutverki í liðinu þó svo að hann sé ekki alltaf í byrjunarliðinu. Á þessu tímabili hefur hann skorað átta mörk í Bestu deildinni og eitt í bikarnum.
Félagaskiptaglugginn lokar þegar klukkan slær miðnætti í kvöld.