Fotbolti.net
13.08.26 - 21:55
Brynjar Ingi Erluson

„Þetta er eins og Davíð gegn Golíat“

Auglýsing
Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs

Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs

Canon

Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Lengjudeildin
Borja Martin Iglesias, þjálfari Völsungs, var ánægður með frammistöðuna og baráttuandann í 2-0 sigri á Ægi í mikilvægum botnbaráttuslag Lengjudeildarinnar í Þorlákshöfn í kvöld.
Lestu um leikinn: Ægir 0 - 2 Völsungur
Völsungur þurfti nauðsynlega á sigri að halda í fallbaráttunni og frammistaðan var nokkuð sannfærandi.

Borja tók við liðinu undir lok maí eftir að Patrick De Wilde var látinn fara.

Hann hafði áður þjálfað hjá Eibar og Osasuna í heimalandinu og hefur unnið að því að blanda spænskum áherslum við íslenskan baráttukraft.

„Mér finnst liðið vera farið að taka á sig minn svip. Ég blanda spænskum aðferðum við sterkan íslenskan karakter. Þetta er áhugaverð blanda og mér líkar vel við hana,“ sagði Borja við Fótbolta.net.

Völsungur er í næstneðsta sæti deildarinnar með 17 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

„Það er enn langt í land en við höfum öll trú á því sem við erum að gera. Við finnum fyrir miklum stuðningi frá stuðningsmönnunum og bæjarbúum á Húsavík.

„Við erum með mjög ungt lið og gefum leikmönnum úr 4. flokki tækifæri. Við erum lítið félag að etja kappi við risa. Þetta er eins og Davíð gegn Golíat,“ sagði hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.