Fotbolti.net
13.09.26 - 15:47
Brynjar Ingi Erluson

Leggur landsliðshanskana á hilluna - Tilnefndur sem besti markvörður ársins

Edouard Mendy er hættur að spila með landsliði Senegal

Edouard Mendy er hættur að spila með landsliði Senegal

Canon

Mynd: EPA

Senegalski markvörðurinn Edouard Mendy hefur ákveðið að leggja landsliðshanskana á hilluna.
Mendy er 34 ára gamall og lék 60 A-landsleiki fyrir Senegal. Hann er einn besti markvörður í sögu þjóðarinnar.

Hann varð Afríkumeistari með Senegal árið 2021 og hefur einnig tvisvar fengið silfur á mótinu.

Enn er möguleiki á að annar Afríkutitill bætist í safnið. Senegal vann Marokkó í úrslitaleik mótsins í byrjun árs en var síðar svipt titlinum fyrir að ganga af velli eftir vafasama dómgæslu.

Þeirri ákvörðun hefur verið áfrýjað til íþróttadómstólsins CAS og ætti niðurstaða að liggja fyrir á næstunni.

Mendy hefur einnig verið tilnefndur til Yashin-verðlaunanna sem besti markvörður ársins eftir frammistöðu sína með senegalska landsliðinu og eftir að hafa unnið Meistaradeild Asíu með Al Ahli í annað sinn.

Brottför hans er mikil blóðtaka fyrir Senegal enda hefur verið treyst mikið á hann síðan hann lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir átta árum.

Mendy heldur þó áfram að spila með Al Ahli. Hann hefur átt frábæran feril og vann meðal annars Meistaradeildina með Chelsea árið 2021, þar sem hann var valinn markvörður ársins og í liði tímabilsins í Meistaradeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.