13.09.26 - 13:18
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu hrikalegt klúður Stefáns Inga

Stefán Ingi fór illa með algert dauðafæri

Mynd: EPA

Stefán Ingi Sigurðarson, framherji Go Ahead Eagles í Hollandi, átti líklega klúður ársins í hollensku deildinni í 1-1 jafntefli liðsins gegn Groningen í gær.
Það verður ekki tekið af Stefáni að hann átti stóran þátt í að Eagles náði í stig úr leiknum.
Brynjólfur Andersen Willumsson, fyrrum liðsfélagi hans í Breiðabliki, kom Groningen yfir í fyrri hálfleik áður en Stefán lagði upp jöfnunarmark Soren Tengstedt á 82. mínútu.
Tæpum sjö mínútum síðar fékk Stefán gullið tækifæri til að kóróna frábæra frammistöðu þegar hann fékk boltann einn fyrir opnu marki, en setti hann á einhvern ótrúlegan hátt framhjá.
Þar hefði hann getað tryggt stigin þrjú og svekkelsið leyndi sér ekki. Stefán setti andlitið í grasið og virtist hreinlega ekki skilja hvernig honum tókst að klúðra færinu.
Fyrir utan þetta klúður hefur hann annars átt fínt tímabil með Eagles. Stefán hefur skorað tvö mörk og lagt upp eitt í sex deildarleikjum en hann skoraði þrjú mörk á síðustu leiktíð.

Sigurðarson had de matchwinner ???????????????????????? zijn ???????? #gaegro pic.twitter.com/51bWti7PHN
— ESPN NL (@ESPNnl) September 12, 2026