13.09.26 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Jimenez hetjan í bálokin

Raul Jimenez kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmarkið

Mynd: EPA

Sheffield Utd 0 - 1 Wolves
0-1 Raul Jimenez ('90 )
0-1 Raul Jimenez ('90 )
Úlfarnir unnu dramatískan 1-0 sigur á Sheffield United í ensku B-deildinni á Bramall Lane í dag. Það stefndi lengi í steindautt jafntefli en varamaðurinn Raul Jimenez tryggði gestunum stigin þrjú undir lokin.
Fyrri hálfleikurinn bauð ekki upp á mikla skemmtun en gestirnir voru þó líklegri til að skapa sér eitthvað og voru meira með boltann.
Umdeilt atvik kom upp snemma í seinni hálfleik þegar Mateus Mane vildi fá víti fyrir hendi á Mark McGuinness. Ekkert var dæmt og ekkert VAR var til staðar til að skoða atvikið aftur.
Heimamenn sóttu aðeins í sig veðrið þegar leið á síðari hálfleikinn og Jordan Ayew átti meðal annars skot rétt framhjá.
Liðin höfðu ekki gert markalaust jafntefli sín á milli síðan 1933 og Úlfarnir ætluðu greinilega ekki að endurstilla klukkuna í þeim efnum.
Þeir höfðu bankað á dyrnar á lokamínútunum og fundu loks sigurmarkið. Tommy Doyle náði ekki nægilega góðri snertingu á boltann en Jimenez var réttur maður á réttum stað og þrumaði honum í netið eftir að hafa komið inn af bekknum.
Risastórt mark í annars bragðdaufum leik. Úlfarnir unnu þar með sinn þriðja leik á tímabilinu og eru komnir með ellefu stig eftir sex leiki, auk þess sem þeir eiga leik til góða. Með sigri í þeim leik gætu þeir mögulega tyllt sér á toppinn.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 10 | +9 | 23 |
| 2 | Middlesbrough | 10 | +6 | 21 |
| 3 | West Ham | 10 | +17 | 19 |
| 4 | Birmingham | 10 | +6 | 17 |
| 5 | QPR | 10 | +6 | 17 |
| 6 | West Brom | 10 | +2 | 17 |
| 7 | Southampton | 10 | +11 | 16 |
| 8 | Stoke City | 10 | +1 | 16 |
| 9 | Blackburn | 10 | +2 | 15 |
| 10 | Wolves | 9 | +2 | 14 |
| 11 | Millwall | 10 | 0 | 14 |
| 12 | Bristol City | 10 | -2 | 14 |
| 13 | Charlton Athletic | 10 | -3 | 14 |
| 14 | Bolton | 10 | -3 | 13 |
| 15 | Sheffield Utd | 10 | 0 | 12 |
| 16 | Portsmouth | 9 | -1 | 11 |
| 17 | Wrexham | 10 | -4 | 11 |
| 18 | Lincoln City | 10 | -10 | 11 |
| 19 | Cardiff City | 10 | +1 | 10 |
| 20 | Norwich | 10 | -3 | 9 |
| 21 | Burnley | 10 | -4 | 8 |
| 22 | Watford | 10 | -11 | 8 |
| 23 | Derby County | 10 | -10 | 6 |
| 24 | Preston NE | 10 | -12 | 4 |