Fotbolti.net
13.09.26 - 13:57
Brynjar Ingi Erluson

Valencia rekur framkvæmdastjórann og þjálfarateymið (Staðfest)

Corberan tók við Valencia árið 2024

Corberan tók við Valencia árið 2024

Canon

Mynd: EPA

Öxin er á lofti hjá spænska félaginu Valencia sem hefur rekið allt þjálfarateymið og framkvæmdastjórann eftir ömurlega byrjun á tímabilinu.
Fréttirnar ættu ekki að koma neinum á óvart enda hefur Valencia tapað öllum fjórum leikjum sínum í deildinni.

Liðið tapaði 1-0 fyrir Real Betis í fyrstu umferðinni, síðan 3-1 fyrir nýliðum Deportivo La Coruna og þar á eftir 5-0 gegn Börsungum.

Í gær tapaði Valencia svo 1-0 fyrir Sevilla og í kjölfarið var ákveðið að bregðast við.

Ron Gourlay, sem hafði starfað sem framkvæmdastjóri félagsins, var rekinn og sömuleiðis Carlos Corberan, þjálfari liðsins, ásamt öllu þjálfarateymi hans.

Oscar Sanchez, sem þjálfar unglingalið Valencia, mun stýra liðinu til bráðabirgða.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.