Fotbolti.net
13.09.26 - 15:38
Brynjar Ingi Erluson

Fimmtíu manns á sjúkrahús eftir leik í Tyrklandi

Öryggisverðir og lögreglumenn fengu matareitrun

Öryggisverðir og lögreglumenn fengu matareitrun

Canon

Mynd: EPA

Um fimmtíu manns þurftu að leita á sjúkrahús eftir leik Alanyaspor og Göztepe í tyrknesku úrvalsdeildinni um helgina, samkvæmt tyrkneskum fjölmiðlum.
Flestir þeirra sem leituðu á spítala voru lögreglumenn og öryggisverðir sem störfuðu á leiknum.

Allir höfðu fengið kjúkling í boði Alanyaspor á meðan leik stóð og virðist eitthvað hafa verið að matnum því fólkið veiktist í kjölfarið og þurfti að leita á spítala.

Mevlüthan Cavusoglu, yfirmaður fótboltamála hjá Alanyaspor, segir málið nú til rannsóknar.

„Svo virðist sem fólkið hafi fengið matareitrun út frá kjúklingaréttinum sem því var boðið á leiknum. Þetta er að mestu leyti lögreglufólk og öryggisverðir. Sem betur fer er heilsufar þeirra gott, en sýni hafa verið tekin úr vörum fyrirtækisins sem seldi matinn og málið verður rannsakað frekar,“ sagði Cavusoglu.

Leiknum lauk með 2-2 jafntefli sem voru vonbrigði fyrir Alanyaspor í baráttunni í efri hluta deildarinnar, á meðan Göztepe er í botnbaráttu.

Íslenski markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson lék með Alanyaspor tímabilið 2022-2023.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.