12.09.26 - 15:39
Brynjar Ingi Erluson
Dómarinn á gæsaveiðum í miðjum leik á Dalvík
Auglýsing

Sveinn Arnarsson var á gæsaveiðum í miðjum leik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dómarar þurfa oft að taka erfiðar ákvarðanir á vellinum en stundum bíða þeirra óvenjulegri verkefni, eins og að veiða gæsir líkt og sást á Dalvík í dag.
Dalvík/Reynir mætir Hvíta riddaranum í lokaumferð 2. deildar karla en óvæntur gestur lét sjá sig í upphafi síðari hálfleiks.
Gæs hafði komið sér inn á völlinn og kom það í hlut Sveins Arnarssonar, dómara leiksins, að fjarlægja hana. Það gekk brösuglega í fyrstu en Sveinn náði að kasta sér á eftir gæsinni og grípa hana áður en hann gekk með hana af velli.
Beint rautt á gæsina og leikurinn gat haldið áfram, en Sveinn fékk lófaklapp úr stúkunni fyrir tilburði sína.
Þetta sprenghlægilega atvik má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Staðan var 3-0 fyrir heimamönnum þegar atvikið átti sér stað.

Þetta er ekkert annað en stórkostlegt pic.twitter.com/J37QoMhjQj
— Jóhann Már Kristinsson (@joikidda) September 12, 2026