Fotbolti.net
13.10.16 - 11:00
Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson tekur við Fylki (Staðfest)

Helgi Sigurðsson þjálfar Fylki næstu þrjú árin.

Helgi Sigurðsson þjálfar Fylki næstu þrjú árin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fylkir sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þess efnis að félagið hafi ráðið Helga Sigurðsson sem nýjan þjálfara meistaraflokks karla. Helgi hefur starfað hjá Víkingi undanfarin ár, þar sem hann hefur verið í þjálfarateymi meistaraflokks og náð frábærum árangri með yngri flokka félagsins.

Fylkir féll úr Pepsi-deildinni í sumar eftir að hafa endað í næst neðsta sæti deildarinnar með 19 stig úr 22 leikjum. Liðið leikur því í næst efstu deild í fyrsta sinn síðan fyrir aldamót. Hermann Hreiðarsson þjálfaði liðið síðasta eitt og hálfa tímabil en hann komst að samkomulagi um starfslok um síðustu helgi.
Helgi sem er 42 ára er með KSÍ A gráðu semur við Fylki til þriggja ára.

Helgi náði á sínum leikmannaferli að verða Íslandsmeistari og atvinnumannaferillinn var farsæll en hann spilaði með mörgum liðum erlendis við góðan orðstýr. Landsliðsferill Helga er glæsilegur, spilaði 62 A-landsleiki og 43 yngri landsleiki og í þessum leikjum skoraði hann 28 mörk.

„Knattspyrnudeild Fylkis bindur miklar vonir við ráðningu Helga og býður hann velkomna til starfa. Jafnframt vill knattspyrnudeild Fylkis nota tækifærið og þakka fráfarandi þjálfara Hermanni Hreiðarssyni og þjálfarateymi hans fyrir þeirra góðu störf,\" segir í tilkynningu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.