Fotbolti.net
13.10.16 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Viðar heldur áfram með Leikni F. (Staðfest)

Viðar Jónsson.

Viðar Jónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Viðar Jónsson, þjálfari Leiknis á Fáskrúðsfirði, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Leiknismenn voru nýiðar í Inkasso-deildinni í sumar en þeir björguðu sér frá falli á markatölu á ævintýralegan hátt í lokaumferðinni með 7-2 útisigri á HK.

Viðar er 39 ára gamall en hann spilaði með Leikni í áraraðir á sínum tíma.

Hann hefur undanfarin ár komið liðinu úr þriðju deild upp í þá næstefstu.
Markvörðurinn reyndi Amir Mehica hefur einnig skrifað undir tveggja ára samning við Leikni sem markmannsþjálfari og markvörður.

Amir kom við sögu í tveimur leikjum í Inkasso-deildinni en á heimasíðu Leiknis segir að hann sé áfram hugsaður sem varamarkvörður á næsta tímabili.

Amir spilaði með Haukum og Fjarðabyggð áður en hann kom til Leiknis fyrir tímabilið.

„Við óskum þessum góðu drengjum til hamingju með samningana og hlökkum til samstarfsins á komandi mánuðum og árum. Það eru vissulega spennandi tímar framundan hjá Leikni,\" segir á heimasíðu Leiknis.
Amir Mehica.

Amir Mehica.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.