Fotbolti.net
13.10.17 - 19:01
Elvar Geir Magnússon

Arna Sif til Verona líkt og Berglind (Staðfest)

Arna Sif til Verona líkt og Berglind (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn Arna Sif Ásgrímsdóttir er gengin í raðir ítalska félagsins Verona.

Verona lenti í þriðja sæti í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en í síðasta mánuði samdi Berglind Björg Þorvaldsdóttir við félagið.
Arna er 25 ára og hefur leikið tólf A-landsleiki. Hún var í landsliðshópnum á EM í sumar en kom ekki við sögu.

Síðustu tvö tímabil lék hún með Val en þar áður með Þór/KA.

Í viðtali við heimasíðu Verona segir Arna að Berglind hafi hvatt sig til að semja við Verona og verður spennandi að sjá hvernig þeim tveimur mun ganga í ítalska boltanum. Arna segist spennt fyrir því að reyna fyrir sér í nýju umhverfi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.