Fotbolti.net
13.10.17 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Newcastle kaupir Merino (Staðfest)

Merino í leik gegn Liverpool fyrr á tímabilinu.

Merino í leik gegn Liverpool fyrr á tímabilinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle hefur keypt miðjumanninn Mikel Merino frá Borussia Dortmund.

Merino kom til Newcastle á láni frá Borussia Dortmund í júlí síðastliðnum.

Eftir fína byrjun á Englandi þá hefur Newcastle ákveðið að nýta ser ákvæði í lánssamningum með því að kaupa Merino.
Hinn 21 árs gamli Merino hefur nú skrifað undir samning við Newcastle sem gildir til ársins 2022.

„Ég er ánægður með að vera hér í fimm ár og ég vonast til að halda áfram að spila með liðinu og gera góða hluti fyrir fólkið og félagið,\" sagði Merino.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.