Fotbolti.net
13.10.18 - 23:10
Elvar Geir Magnússon

Tíu mestu vonbrigðin hingað til í enska

Salah er skugginn af sjálfum sér frá síðasta tímabili.

Salah er skugginn af sjálfum sér frá síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Football365 hefur valið tíu mestu vonbrigðin að sínu mati í upphafi ensku úrvalsdeildarinnar, Átta umferðir eru að baki.
10) Mesut Özil
Launahæsti leikmaður Arsenal hefur komið að þremur mörkum með beinum hætti, jafnmörgum og Danny Welbeck og einu meira en Granit Xhaka. Özil hefur aðeins byrjað fjóra af níu leikjum í sigurgöngu Arsenal og óvænt verið í aukahlutverki.

9) Alireza Jahanbakhsh
Íraninn sem Brighton gerði að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. 25 ára gamall og skoraði 22 mörk fyrir AZ Alkmaar í fyrra. Hann er búnn með einn byrjunarliðsleik. Hann er í einhverju aðlögunarferli en það eru vonbrigði að hann sé ekki kominn lengra á veg í því.

8) Crystal Palace
Fengu Max Meyer frá Schalke en hefðu vel getað gert miklu betur á sumarmarkaðnum. Þeir hafa bara náð sigrum gegn nýliðum Fulham og fallbaráttuliði Huddersfield. Bara Huddersfield og Cardiff hafa skorað færri mörk. Palace er í 14. sæti og ekki náð að taka skrefið.

7) Leikmannakaup Southampton
Danny Ings hefur verið flottur, Jannik Vestergaard þokkalegur en var á bekknum í síðasta leik á meðan Mohamed Elyounoussi og Stuart Armstrong voru utan hóps. Dýrlingarnir eru rétt fyrir ofan fallsætin og nýju mennirnir ekki skilað því sem vonast hafði verið eftir.

6) Jack Wilshere
Saga sem átti að vera öðruvísi. Er í sama fari hjá West Ham og hann var í hjá Arsenal. Meiðslavandræðin halda áfram og hann þurfti að fara í aðgerð á ökkla.

5) Salomon Rondon
Newcastle sótti Rondon á lánssamningi frá West Brom. Það er varla hægt að kenna honum um að félagið leggi þessa ábyrgð á hans herðar en hann stendur allavega ekki undir henni. Dwight Gayle var lánaður til West Brom á móti og hefur skorað jafnmörg mörg og félagið sem á hann.

4) Ruben Loftus-Cheek
Þessi 22 ára leikmaður hefur líkamlegan styrk og góða tækni en er ekki að ná að finna sig. Hann fór með á HM og var á óskalista fjölmargra liða um alla Evrópu. Búist var við því að þetta yrði tímabilið sem hann myndi festa sig í sessi en hann hefur frekar fjarlægst. Hefur aðeins leikið 99 mínútur fyrir aðalliðið.

3) Alexis Sanchez
Sigurmarkið dramatíska gegn Newcastle mun gefa Sílemanninum sjálfstraust en hann hefur átt erfitt með að fóta sig á Old Trafford. Þetta var aðeins fjórða mark hans í 25 leikjum síðan hann kom í janúar. Besta frammistaða hans í Manchester er enn píanóspilið þegar hann var kynntur.

2) Fulham
Liverpool eyddi mestu og er í öðru sæti, Chelsea eyddi næst mestu og er í þriðja sæti, Fulham er þriðja hvað varðar eyðslu... liðið er í 17. sæti!? Fulham sendi skýr skilaboð með því að eyða 101,7 milljónum punda en sú eyðsla hefur verið algjörlega misheppnuð hingað til. Það er betra að læra að labba áður en maður reynir að hlaupa.

1) Mohamed Salah
Þetta er ekki krísa en klárlega áhyggjuefni og alveg pottþétt vonbrigði. Mohamed Salah nær engan veginn að fylgja eftir frammistöðunni á hans fyrsta tímabili hjá Liverpool. Salah skoraði 44 mörk á síðasta tímabili þrátt fyrir að hafa ekki náð fleiri en 20 í neinum af hinum tímabilunum. Það var alltaf möguleiki á að árangur hans á síðasta tímabili væri frávik frekar en ný regla. Salah á í erfiðleikum með að ráða við pressuna sem er á honum.
Alexis Sanchez.

Alexis Sanchez.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.