Fotbolti.net
13.10.20 - 08:00
Victor Pálsson

Sérstakt að spila með Reus og Dortmund

Sérstakt að spila með Reus og Dortmund
Canon

Mynd: Getty Images

Reinier, ungur leikmaður Borussia Dortmund, viðurkennir að hann sé að upplifa drauminn með því að spila fyrir félagið.
Reinier er aðeins 18 ára gamall en hann gerði tveggja ára lánssamning við félagið frá Real Madrid í ágúst.

Brasilíumaðurinn var duglegur að fylgjast með leikjum Dortmund þegar hann var yngri og varð ástfanginn af spilamennsku liðsins.

„Þegar ég var yngri þá horfði ég á marga leiki Dortmund í Brasilíu. Ég var hrifinn af þessum hraða fótbolta og hvernig þeir færðu boltann," sagði Reinier.

„Bæði með Marco Reus eða Pierre-Emerick Aubameyang og Robert Lewandowski, þeir voru svo kraftmiklir."

„Þess vegna er ég svo ánægður að vera á vellinum með Reus. Það er virkilega sérstakt fyrir mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.