Luis Campos, maðurinn sem átti stóran þátt í titlum Lille og Mónakó í frönsku deildinni, er einn af þeim sem koma til greina sem nýr yfirmaður fótboltamála hjá Newcastle.
Á síðustu níu árum hefur PSG verið með mikla yfirburði í Frakklandi en Lille og Mónakó hafa þó náð að vinna titilinn.
Á síðustu níu árum hefur PSG verið með mikla yfirburði í Frakklandi en Lille og Mónakó hafa þó náð að vinna titilinn.
Sjóðir nýrra eigenda Newcastle eru svo gott sem botnlausir en þeir hafa þó sagt að þeir vilji reka félagið á sjálfbæran hátt.
Portúgalinn Campos yfirgaf Lille í desember á síðasta ári. Hann var orðaður við Tottenham þegar Jose Mourinho var stjóri þar.
Fyrr í vikunni greindi Telegraph frá því að Ralf Rangnick, fyrrum stjóri RB Leipzig, gæti verið ráðinn í starf yfirmanns fótboltamála hjá Newcastle.
Athugasemdir