Breiðablik spilar annan leik sinn í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld er það mætir Real Madrid á Alfredo Di Stefano-leikvanginum í Madríd.
Real Madrid vann Kharkiv, 1-0, í fyrstu umferð á meðan Blikar töpuðu fyrir Paris Saint-Germain, 2-0, eftir hetjulega frammistöðu.
Það verður hart barist klukkan 19:00 en Madrídingar munu spila 3-5-2 leikkerfið. Liðið hefur unnið síðustu tvo leiki í því kerfi og verður fróðlegt að sjá hvort Blikum tekst að brjóta það niður með hröðum skyndisóknum.
Leikir dagsins:
A-riðill:
16:45 PSG-WFC Kharkiv (Stade Jean Bouin)
19:00 Real Madrid-Breiðablik (Estadio Alfredo di Stefano)
B-riðill:
16:45 Wolfsburg - Servette Chenois
19:00 Juventus - Chelsea
Athugasemdir