Fotbolti.net
13.11.12 - 13:02
Magnús Már Einarsson

Ólafur Örn í Fram (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson, Hrannar M. Hallkelsson og Ólafur Örn Bjarnason.

Þorvaldur Örlygsson, Hrannar M. Hallkelsson og Ólafur Örn Bjarnason.

Canon

Mynd: Heimasíða Fram

Ólafur Örn Bjarnason hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.
Þessi 37 ára gamli varnarmaður staðfesti um helgina við Fótbolta.net að hann ætti í viðræðum við Framara en hann hefur nú gengið samning frá samningi við félagið.

,,Knattspyrnudeild Fram býður Ólaf Örn velkominn í félagið og vonast til að sjá hann sýna sínar bestu hliðar í sumar,\" segir á heimasíðu Fram.

Ólafur kom til Grindavíkur úr atvinnumennsku árið 2010 og tók við sem spilandi þjálfari liðsins. Hann hætti sem þjálfari eftir tímabilið 2011 og varð leikmaður undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Grindvíkingum í sumar.

Ólafur Örn er þriðji leikmaðurinn sem Framarar fá í sínar raðir í vetur en áður höfðu Viktor Bjarki Arnarsson og Haukur Baldvinsson samið við félgaið.

Heimild: Heimasíða Fram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.