Fotbolti.net
13.11.16 - 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gus Poyet rekinn frá Betis eftir fjóra mánuði (Staðfest)

Poyet missti starfið

Poyet missti starfið

Canon

Mynd: Getty Images

Real Betis hefur ákveðið að reka Gus Poyet úr starfi knattspyrnustjóra eftir minna en fjóra mánuði í starfi. Það er búið að ráða í hans stað, en sá heitir Victor Sanchez del Amo og er fyrrum þjálfari Deportivo La Coruna og Olympiakos.

Betis er búið að taka 11 stig úr 11 leikjum á þessu tímabili, en það var ekki talinn ásættanlegur árangur og því var Poyet vikið úr starfi. Betis er tveimur stigum frá fallsæti.
„Real Betis hefur tekið ákvörðun að binda enda á starfstíma Gustavo Poyet hjá aðalliðinu,\" segir í yfirlýsingu frá Betis.

„Félagið vill sýna sérstakt þakklæti sitt fyrir tileinkunina og fyrirhöfnina sem úrúgvæski knattspyrnustjórinn og þjálfaralið hans sýndu á meðan á tíma þeirra stóð hér og viljum við óska honum hins besta í framtíðinni.\"

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.