Fotbolti.net
13.11.17 - 15:44
Magnús Már Einarsson

Giggs ráðinn til starfa í Víetnam (Staðfest)

Ryan Giggs.

Ryan Giggs.

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Giggs, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur tekið við starfi sem yfirmaður fótboltaakademíu í Víetnam.

Hinn 43 ára gamli Giggs mun hefja störf þann 20. nóvember næstkomandi.

Giggs var aðstoðarstjóri Louis van Gaal hjá Manchester United en síðan þá hefur hann verið orðaður við hin ýmsu störf.
Giggs hefur núna óvænt tekið við starfi í Víetnam en þar mun hann þjálfa leikmenn, gefa þjálfurum ráðleggingar og byggja upp fótboltaakaedmíu.

Orðrómur er um að Paul Scholes, fyrrum liðsfélagi Giggs hjá Manchester United, muni einnig taka til starfa hjá sömu akademíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.