Fotbolti.net
13.11.19 - 08:30
Magnús Már Einarsson

Skóflustunga hjá Fram - 1600 manna stúka

Skóflustunga hjá Fram - 1600 manna stúka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í gær var tekin skóflustúka að nýrri íþróttamiðstöð Fram sem verður staðsett í Úlfarsárdal.

Íþróttamiðstöðin samanstendur af fjölnota íþróttahúsi, áhorfendastúku fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasölum, félags- og þjónustuaðstöðu fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrýmum ásamt samkomusal og fundaraðstöðu.
Nýr knattspyrnuvöllur verður gervigrasvöllur, með stúku sem rýmir 1.600 áhorfendur. Góðir grasæfingavellir verða einnig á svæðinu.

Byggingin er sunnan við Úlfarsbraut og er austasti hluti byggingarkeðju mannvirkja við Úlfarsbraut 122-126 í Úlfarsárdal.

Áætluð verklok eru árið 2022 en þangað til mun meistaraflokkur Fram spila heimaleiki sína í Safamýri líkt og í sumar.

Smelltu hér til að sjá nánari upplýsingar um svæðið
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.