Fotbolti.net
14.01.17 - 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Aron Skúli í Val (Staðfest)

Aron Skúli Brynjarsson er kominn í Val.

Aron Skúli Brynjarsson er kominn í Val.

Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Vals

Aron Skúli Brynjarsson, efnilegur framherji, skrifaði nýlega undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals. Aron er fæddur árið 1998 og kemur frá Blikum.

Aron kom fyrst til Vals í nóvember 2015 frá Blikum, en hann fór svo til KH að láni frá Val þar sem mörkin voru sex í sex leikjum. Aron mun spila með KH fyrst um sinn.
Þess má geta að Aron hefur vakið athygli hjá félögum erlendis frá sem fylgjast með honum og hefur hann þegar afþakkað eitt boð um að kanna aðstæður .

„Valur er afar heilsteyptur klúbbur sem tók mjög vel á móti mér við vistaskiptin úr Breiðablik. Meistaraflokks-strákarnir sýna mikið umburðarlyndi gagnvart okkur yngri strákunum en í leiðinni hjálpa að móta okkur sem leikmenn,\" sagði Aron í fréttatilkynninug frá Val.

„Styrkleika mína tel ég vera hraði, snertingar á boltann og hlaupin sem ég tek. Tel mig líka góðan í að klára færi.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.