Fotbolti.net
14.01.17 - 12:16
Magnús Már Einarsson

Marko Nikolic í Keflavík (Staðfest)

Marko Nikolic.

Marko Nikolic.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Raggi Óla

Keflavík hefur fengið Marko Nikolic til liðs við sig frá Hugin á Seyðisfirði. Þetta staðfesti Guðlaugur Baldursson, þjálfari Keflavíkur, í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn gegn FH í Fótbolta.net mótinu í dag.

Marko, sem er frá Serbíu, spilaði allan leikinn í vinsri bakverðinum hjá Keflavík í dag en liðið tapaði 3-0 gegn Íslandsmeisturunum.
Hinn þrítugi Marko hefur verið í lykihlutverki hjá Hugin síðan hann kom til félagsins árið 2012.

Marko var í liði Hugins sem sigraði 2. deildina árið 2015 og í fyrra skoraði hann þrjú mörk í tuttugu leikjum með liðinu í Inkasso-deildinni.

Marko er fjölhæfur leikmaður en hann hefur leikið í vinstri bakverði, á miðjunni og á kanti á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.