Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 14. janúar 2019 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Leonardo Balerdi til Dortmund (Staðfest)
Mynd: Marca
Borussia Dortmund er búið að festa kaup á argentínska ungstirninu Leonardo Balerdi sem kemur frá Boca Juniors.

Balerdi er öflugur miðvörður sem hefur verið að gera góða hluti með Boca Juniors og U20 landsliði Argentínu.

Hann verður tvítugur í lok janúar og er búinn að skrifa undir samning sem gildir til 2024.

Dortmund greiðir 14 milljónir punda fyrir varnarmanninn en hann átti að koma til félagsins næsta sumar.

Michael Zorc, yfirmaður íþróttamála hjá Dortmund, sagði að félagaskiptin hafi verið færð í janúar því hann gæti spilað hlutverk á lokakafla tímabilsins. Dortmund er með sex stiga forystu á Bayern á toppi þýsku deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner