Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   mán 14. janúar 2019 15:56
Arnar Helgi Magnússon
Munir gengur til liðs við Sevilla (Staðfest)
Munir El Haddadi
Munir El Haddadi
Mynd: GettyImages
Munir El Haddadi er genginn til liðs við Sevilla en hann kemur frá Barcelona.

Munir er 23 ára gamall og var eitt sinn einn efnilegasti framherji Evrópu en honum hefur ekki tekist að festa sig i leikmannahóp Barcelona.

Samningur hans við Barcelona hefði runnið út í sumar en félagið var búið að gefa það út að það myndi ekki framlengja við Munir.

Mikill áhugi var á leikmanninum en West Ham var sagt virkilega áhugasamt um leikmanninn.

Munir hefur spilað 11 leiki á tímabilinu og skorað 2 mörk.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner