Fotbolti.net
14.01.20 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Haukar fá Pál Hróar frá Danmörku (Staðfest)

Haukar fá Pál Hróar frá Danmörku (Staðfest)
Canon

Mynd: Hulda Margrét / Haukar

Vinstri bakvörðurinn Páll Hróar Helgason er genginn í raðir Hauka. Hann fæddist um aldamótin og verður tvítugur síðar á árinu.
Páll Hróar lék með Fjarðabyggð og KFG í 2. deildinni áður en hann var fenginn til Brabrand IF síðasta sumar. Brabrand leikur í dönsku C-deildinni og mistókst að fara upp um deild í fyrra.

Páll Hróar á 11 landsleiki að baki fyrir U17 og U16 lið Íslands og mun hjálpa Haukum í 2. deildinni næsta sumar. Hann býr yfir mikilli reynslu úr deildinni og er mikils vænst af honum.

Haukar féllu úr Inkasso-deildinni síðasta sumar með 22 stig úr 22 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.