Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 14. janúar 2020 16:16
Elvar Geir Magnússon
Pussetto til Watford (Staðfest)
Ignacio Pussetto er Argentínumaður.
Ignacio Pussetto er Argentínumaður.
Mynd: Watford
Vængmaðurinn Ignacio Pussetto, 24 ára, er orðinn leikmaður Watford en hann gerði fjögurra og hálfs árs samning.

Pussetto getur einnig spilað sem fremsti maður eða sem sóknarmiðjumaður en hann kemur frá Udinese þar sem hann lék 50 leiki og skoraði fimm mörk.

Watford greiðir Udinese sjö milljónir punda fyrir Pussetto.

Bæði Watford og Udinese eru í eigu Pozzo fjölskyldunnar og leikmenn hafa oft gengið kaupum og sölum á milli félaganna.

Watford hefur náð í þrettán stig í síðustu fimm deildarleikjum og klifraði upp úr fallsæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner