Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 16:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron glímir við meiðsli - Vonast til að ná fyrstu leikjum Ujpest
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Bjarnason lék með Val ,og varð Íslandsmeistari með liðinu, á liðnu tímabili. Aron er samningsbundinn ungverska félaginu Ujpest.

Hann hefur ekki verið með í undirbúningsleikjum liðsins að undanförnu en nú er í gangi undirbúningur fyrir seinni hluta tímabilsins í Ungverjalandi.

„Ég meiddist í lok desember en ég er að koma til baka á næstu dögum," sagði Aron við Fótbolta.net.

Fyrsti leikur Ujpest eftir hlé er þann 23. janúar. Aron kvaðst bjartsýnn á að vera í hóp í fyrsta eða öðrum leiknum eftir að deildin fer aftur af stað.

Ujpest er í 9. sæti af alls tólf liðum í efstu deild. Liðið er með nítján stig eftir sextán leiki, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir
banner