Fotbolti.net
14.01.22 - 22:46
Victor Pálsson

Jagielka á leið til Stoke

Jagielka á leið til Stoke
Canon

Mynd: Getty Images

Phil Jagielka, fyrrum landsliðsmaður Englands, er á leið til Stoke City á frjálsri sölu.
Sky Sports greinir frá þessu í kvöld en Jagielka er frjáls ferða sinna eftir að hafa yfirgefið Derby County.

Samningur varnarmannsins við Derby rann út og var ekki möguleiki fyrir félagið að framlengja vegna fjárhagsörðugleika.

Sky segir að Jagielka sé búinn að gangast undir læknisskoðun og mun skrifa undir samning út tímabilið.

Um er að ræða 39 ára gamlan hafsent sem spilaði 40 landsleiki fyrir England og lék lengi vel með Everton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.