Fotbolti.net
10.07.26 - 22:51
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: KV vann á Ásvöllum

3. deild: KV vann á Ásvöllum
Canon

Mynd: KV

KÁ 1 - 3 KV
0-1 Oddur Ingi Bjarnason ('11 )
1-1 Þórður Örn Jónsson ('16 )
1-2 Eiður Snorri Bjarnason ('48 )
1-3 Mikhael Kári Olamide Banjoko ('67 )
KÁ tók á móti KV í eina leik kvöldsins í 3. deild karla og náðu gestirnir úr Vesturbænum forystunni snemma leiks.

Oddur Ingi Bjarnason skoraði á elleftu mínútu en Þórður Örn Jónsson jafnaði fimm mínútum síðar. Staðan var 1-1 í leikhlé.

Eiður Snorri Bjarnason og Mikhael Kári Banjoko skoruðu fyrir gestina í seinni hálfleik til að tryggja flottan sigur KV.

Vesturbæingar eru í fjórða sæti með 21 stig eftir 12 umferðir, ellefu stigum fyrir ofan KÁ sem er í fallbaráttu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.