Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 14. febrúar 2019 15:41
Magnús Már Einarsson
Cassie Boren í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við bandaríska varnarmanninn Cassie Boren fyrir komandi keppnistímabil í Pepsideild kvenna.

Boren er 22 ára gömul og er að ljúka háskólanámi þar sem hún spilaði með sterku liði Texas Tech í bandaríska háskólaboltanum.

„Þetta er spennandi leikmaður sem stóð sig mjög vel í háskólaboltanum og ég hlakka til að vinna með henni,“ segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss.

„Það verður áskorun fyrir hana að stíga inn í vörnina hjá okkur en varnarleikurinn var okkar aðalsmerki í fyrra og gekk mjög vel. Við væntum þess að hún muni smella vel inn í hópinn hjá okkur."

Cassie á að fylla skarð Allyson Paige Haran sem var frábær í vörn Selfyssinga í fyrra.

Allyson var valin besti leikmaður Selfyssinga en hún hefur samið við NC Courage í bandarísku atvinnumannadeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner